Sportsíða Magga
04.01.2007 16:05:46 / steelers

Lokun síðu.

Það tilkynnist hér með að þessari síðu hefur verið lokað/Hætt og sameinuð fréttasíðu minni,slóðin þar er http://blogg.central.is/korntoppurinn en söngsíðan er komin á http://blog.central.is/songstrumpur,þar verður hægt að finna allt sem tengist tónlist,hvenær böll hljómsveita eru,böll hjá böndum Fjölment(þ.e.a.s Plútó og Hraðakstur bannaður),en semsagt,sportið tilheyrir fréttasíðunni frá og með þessari færslu í dag.Ég vil þakka þeim sem litu við á þessa síðu,en nú er mál að linni.KV: STÓRFYRIRFERÐIN.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 09:40:46 / steelers

Jólatónleikar.

Góðan daginn gott fólk.þá eru jólatónleikar Fjölmenntar afstaðnir og gengu svona brillijant vel fyrir sig,voru 13 atriði á dagskrá hvert öðru betra,spilað var á blokkflautu,gítar,munnhörpuhljómsveit íslenska lýðveldisins spilaði og sungið mikið,auk þess sem Plútó og Hraðakstur bannaður spiluðu sín 2 lögin hvort,mikið af nýjum númerum kom fram en einnig gamlir refir,ekki er laust við að menn hafi tárast þegar Þórey Rut söng Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá og gerði það vel,ég táraðist allavega,ég og björgvin sungum saman Guðs kristni í heimi og gekk það vel en máttum alveg sleppa háu tónunum í lokin(við munum það bara næst)Í gær var svo æfing hjá Hraðakstrinum því við eigum að spila í Geðhjálp á föstudagskvöld og er það alltaf jafn skemmtilegt og er þetta seinasta spilamennska fyrir jól,En alveg er það merkilegt hvað Ari og hinir söngkennararnir leggja ásig fyrir tónlistina hjá þessum geiraÁ nýju ári verður síðan bætt í og vonandi hefjast bæði böndin handa við tökur á geisladisk,en Plútó gaf út diskinn"Ef þig langar"árið 2001 og var ég með á honum og man ég hvað það var skemmtilegt.Eitt veit ég fyrir víst og það er að bæði böndin eiga nóg af efni til að taka upp.Einnig er fyrirhuguð utanlandsferð annaðhvort árið 2007 eða 2008,en nóg komið af bullinu í bili,þar til næst farið vel með ykkur KV:Korntoppurinn.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 15:18:06 / steelers

Mikið að gera í söngnum á næstunni.

Eins og ég skrifaði seinast þá er þetta orðin söngsíða þar sem ég blogga um hvað hljómsveitirnar Hraðakstur bannaður og Plútó eru að kúlderst og þessar vikurnar er alveg yfirdrifið að gera,á laugardaginn kemur þann 25/11 hita böndin upp fyrir sjálfa Stuðmenn á 30 ára afmæli Þroskahjálpar,svo er vonandi ball í Árseli fyrstu helgina í desember,og síðan jólatónleikar Fjölmenntar þann 8 des í Grensáskirkju og standa æfingar yfir vegna alls þessa í báðum böndum og hvergi slegið af,en meira síðar og þá er von á fyrsta viðtali fljótlega en ekki vitað enn við hvern en það kemur í ljós,sjón er sögu ríkari.KV: Söngfuglinn.

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 12:38:30 / steelers

Breyting á síðu.

Það tilkynnist hér með að sportsíðan verður færð á fólk.is en hér opnar söngsíða hljómsveitanna Plútó og Hraðakstur bannaður,fréttir verða af spilamensku bandanna og regluleg viðtöl við hljómsveitarmeðlimi,einnig munu hér vera upplýsingar um böll og tónleika hljómsveita á borð við Papana,Sálina ofl.Njótið vel.KV: Söngfuglinn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 04:05:19 / steelers

Leti og breytingar.

Sæl elskurnar mínar.Vegna mikillar leti og tímaleysis hefur ekkert verið bloggað í langann tíma en það stendur til bóta,en breytingar verða einhverjar en ekki miklar,það kemur blogg bráðlega.KV: Stórfyrirferðin.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 14:34:06 / steelers

Hafist handa að nýju.

Komið þið sæl og blessuð elskurnar,þá er tími til kominn að byrja að nýju eftir gott sumarfrí,og verður bloggað um sport þegar tími gefst til og í dag byrjum við á smá upprifjun frá sumrinu og gerum því skil sem þarf að koma til skila,en margt hefur gerst í sumar og þar með 2 HM í knattspyrnu og körfuknattleik,en ég ætla að rekja eitthvað af þessu í stuttu máli hvert fyrir sig og einnig beina sjónum að íslandsmótinu í knattspyrnu og handbolta,en tímabilið hefst þar á bæa fljótlega,en hefjum þá þessa yfirfverð.Knattspyrna:Í sumar fór fram með pompi og prakt í Þýskalandi HM í knattspyrnu er óhætt að segja að margir voru tilkallaðir en bara einn útvalinn,eftir mikið spark og hlaup urðu Ítalir verðskuldað heimsmeistarar,ég segi verðskuldað því þetta er besta knattspyrna sem ég hef séð liðið spila,en það sem vakti athygli allra var snautlegur endir Zinedine Zidane,aðalljóðurinn á keppninni var þessi fáránlegi leikaraskapur Portúgala og svo öll þessi spjöld og um þverbak keyrði í leik Hollendinga og Portúgala en þar voru gefin 16 spjöld ef mig misminnir ekki,næsta keppni verður í S.Afríku 2010.Körfubolti:HM var haldið fyrir stuttu í Japan og þar komu Spánverjar mjög á óvart og sigruðu,Spánverjar léku til úrslita við Grikki og gjörsamlega"skúruðu"þeim með 23 stiga mun 70-47,þetta gerðu Spánverjar þó svo að þeirra besti maður,Pau Gasol leikmaður Memphis Grisslies væri alvarlega meiddur á varamannabekk,í undanúrslitum höfðu Spánverjar unnið Argentínu en þar meiddist Gasol einmitt og Grikkir unnu mikið afrek er þeir sigruðu stjörnumprýtt lið Bandaríkjanna 101-95 Bandaríkin unnu svo Argentínu í leik um bronsið en vel gert hjá Spánverjum.Handbolti:Við Íslendingar vorum ekki beint heppnir þegar við drógumst gegn Svíum í forkeppni fyrir HM í Þýskalandi,en við gerðum okkur lítið fyrir og slógum Svía út og leikum í úrslitakeppninni í Janúar 2007 og erum í riðli með Frökkum,Úkrainumönnum og Áströlum og er það mitt mat að leiðin í milliriðil eigi að vera greið en ekki má vanmeta neitt lið.Kraftasport:Mikið er í gangi í kraftasportinu nú sem endranær,"Molastríðið"stendur sem hæst og ekki fyrirséð hvernig það endar,nú er verið að sýna myndina"Ekkert mál"en það er heimildarmynd um Sterkasta mann allra tímaJón Pál Sigmarson,er ég búinn að sjá þessa mynd og mæli sérstaklega með henni,en nú um helgina fer fram Sterkasti fatlaði maður heims í 4 sinn,ég verð ekki með sökum lélegs forms og líkamsástands en mæti og aðstoða,núverandi titilhafi er Hörður Arnarson en Kristbergur Jónson(Beggi Túrbó)sem vann fyrir 2 árum hefur svarið þess dýran eið að endurheimta titilinn,við sjáum hvað setur í þeim efnum en ég get lofað skemmtilegri keppni. Íslandsmótið í knattspyrnu:Þegar þetta er skrifað eru 2 umferðir eftir af mótinu og spenna mikil,fyrir 2-3 umferðum virtist sem FH-ingar ættu titlinn vísan en í seinustu umferðum hafa menn farið frá þeim utan í atvinnumennsku eða á meiðslalistann og skilst mér að ekki færri en 8 leikmenn liðsins séu meiddir,en FH vantar aðeins 1 stig til að innbyrða sinn 3 íslandsmeistaratiil í röð,en Valsmenn geta "Stolið titlinum"ef FH-ingar misstíga sig,Undurritaður spáir því að það gerist ekki,þá er það fallbaráttan,eins og staðan er í dag geta 6 lið enn fallið úr deildinni eða frá 5 sæti og niður úr,undirritaður er í "Berserkjum"stuðningsmannaliði Víkings og vonar að sjálfsögðu að þeir falli ekki um deild,líklegt er að ÍBV falli og þá baráttan á milli hinn 5 en það eru:Víkingur,Fylkir,Breiðablik,Grindavík og Akranes,verður þetta blóðug barátta fram á seinustu sekúndur mótsins og mikil dramatík eftir að gerast áður en yfir lýkur.En ú er nóg komið í bili,íslandsmótið í handknattleik bíður betri tíma.Meira síðar,KV"Stórfyrirferðin"eða Maggi Sport.

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 12:06:18 / steelers

Loksins,loksins.

Jæja elskurnar þá er komið að því að blogga aðeins en sökum anna við hitt og þetta síðustu vikur hefur ekkert verð bloggað á þessari síðu og heldur ekki fréttasíðunni en ég ætla að gera bragarbót á því núna og fara á hundavaði yfir það helsta sem gerst hefur merkilegt í íþróttaheiminum síustu vikurnar,vonandi hafið þið gaman af en byrjum á byrjuninni. Handknattleikslið ÍR hélt sér í deild meðal þeirra bestu og verða í úrvalsdeild næsta vetur,þjálfaraskipti verða hjá liðinu en Finnbogi(4 ár) og Júlli(5 ár) hættu með liðið og í staðinn tekur hinn magnaði ÍR-ingur Erlendur Ísfeld við,verður gaman að fylgjast með störfum hans næstu 3 árin en Erlendur er margreyndur þjálfari í yngri flokkum ÍR auk þess sem hann þjálfaði kvennalið Stjörnunnar í 2 ár,við hér á síðunni óskum FErlendi góðs gengis með liðið. Nú,Haukar urðu deildarbikarmeistarar í handbolta eftir æsilegan leik við Fylki og þurfti 2 framlengingar til að fá fram úrslit,Framarar urðu íslandsmeistarar og er óhætt að segja að það kom öllum á óvart en þeir áttu titilinn sam skilinn,á nýafstöðnum aðalfundi handknattleiksdeildar ÍR var undirritaður kosinn varamaður í stjórn deildarinnar og mun ég gera mitt besta í þeirri vinnu sem þar bíður enda þaulvanir menn fyrir og hlakka ég mjög til að byrja.NBA er enn á fullu og þegar þetta er ritað stanada yfir úrslit í deildunum 2,í Vesturdeild er hörkuviðureign í gangi en þar eru Dallas Mavericks að spila gegn Phoenix Suns og stendur 2-1 fyrir Dallas og ekki er það síðra austanmegin en þar er Miami Heat að spila við Detroit Pistons og leiðir Miami einvígið 3-1,mun ég fylgjast með restinni af NBA í Bandaríkjunum en ég fer þangað á fimmtudaginn,er ljóst að spennandi lokaúrslit eru frammundan. Núíslandsmótið í knattspyrnu hófst með pompi og prakt og hefur farið betur af stað en mörg undanfarin ár,ekki kemur á óvart að íslansmeistarar FH eru með fullt hús stiga eftir 4 umferðir en á óvart kemur að skagamenn eru neðstir með ekkert stig,ja öðruvísi mér áður brá,einnig væri ekki leiðinlegt að Víkingur yrði sputniklið deildarinnar,en nú fer íslenska þjóðin á fótboltafyllerí þegar HM hefst 9 júní og þar verður hart barist.Hér til vinstri verður skoðanakönnun þar sem spurt verður hverjir verði heimsmeistarar endilega takið þátt og látið skoðun ykkar í ljós,og skrifið ykkur endilega í gestabókina,Formúlan hefur líka farið vel af stað og verður gaman að fylgjast með henni í sumar og megi sá besti vinna en þó viðist Alonso vera líklegur til að verja titilinn en það kemur í ljós,það eru örugglega ekki allir sem lesa þetta sammála þá er bara að tjá sig ekki rétt?Næsta blogg verður líklega ekki fyrr en ég kem aftur til landsins 22 júní en kanski kemur eitthvað á morgunn en nú er komið nóg í bili hafið það gott og njótið lífsins,heyrumst seinna.KV:Maggi Sport.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 00:32:52 / steelers

Deildarbikar karla í handbolta.

Í kvöld fóru fram seinni leikir í deildarbikarkeppni karla í handbolta og eftir þá leiki er ljóst að viðureign Hauka og Vals fer í oddaleik eftir að Haukar sigruðu Val í kvöld í Laugardalshöll 27-29,og verður oddaleikurinn leikinn á Ásvöllum á Sunnudagskvöld og verður vonandi jafn og spennandi,hin viðureign kvöldsins var viðureign Fylkis og nýbakaðra íslandsmeistara Fram og er óhætt að segja að þessi leikur varð aldrei spennandi,staðan var jöfn upp í 9-9 en þá skildu leiðir og Fylkir komst í 14-9,staðan í leikhléi var svo 15-11 fyrir heimamenn í Fylki,í seinni hálfleik héldu heimamenn áfram góðum varnarleik og fyrir aftan vörnina stóð Hlynur Morthens og varði mjög vel,jafnt og þétt sigldu Fylkismenn frammúr og unnu loks 10 marka sigur á íslansmeisturum Fram 32-22 og eru komnir í úrslit deildarbikarsins og mæta þar Haukum eða Val eins og fyrr segir,eitthvað segir mér að Framarar séu saddir og hafi mætt með hálfum huga en það skal ekkert tekið af Fylkismönnum,við hér á síðunni fylgjumst með oddaleiknum á Sunnudagskvöldið og skrifum um hann hér á síðunni,en vel gert hjá Fylki. Meira síðar:Maggi Sport

» 6 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 00:11:55 / steelers

Valur deildarbikarmeistari kvenna.

Í kvöld tóku Valskonur á móti nýkrýndum íslandsmeisturum ÍBV í öðrum leik liðanna í úrslitum deildarbikars kvenna í handknattleik og urðu eyjakonur að vinna leikinn til að eiga kost á odda leik í Eyjum,en Valskonur voru ekkert á því að leyfa það,markverðir liðanna vörðu báðar á 3ja tug skota en staðan í hálfleik var staðan 9-14 fyrir ÍBV og útlitið bjart en í seinni hálfleik virðist sem sóknarleikur Eyjaliðsins hafi gjörsamlega hrunið saman og sigldu Valskonur frammúr og sigraði með 26-24 eða seinni hálfleik 17-10,eru Valsstúlkur vel að þessum sigri komnar og ljóst að eftir áramót hafa þær verið með besta liðið í kvennaflokki hvað svo sem úrslit íslandsmótsins segja. TIL HAMINGJU VALSKONUR. KV.Maggi Sport

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 13:58:03 / steelers

Deildarbikar í handbolta.

Í gærkvöldi fóru fram fyrri leikirnir í deildarbikarnum í handbolta en er þetta nýtt mót á vegum HSÍ,en þar mætast 4 efstu liðin í í deildarkeppnini karla og kvenna,Á Á svöllum sigraði Valur heimamenn í Haukum 24-28 og í Framhúsinu mættu íslandsmeistarar fram Fylki og sigruðu Fylkismenn í hörkuleik 32-35.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 17:06:31 / steelers

ÍR meðal þeirra bestu.

Jæja góðir hálsar,þá er kallinn loksins búinn að ná úr sér spennunni eftir laugardaginn og nú skal bloggað um þennan leik,fara yfir söguna og það sem er frammundan.Én byrjum á leiknum sem öllu máli skipti og endaði svona vel fyrir okkur.Óhætt er að segja að andrúmsloftið í víkinni s.l laugargag hafi verið rafmagnað og skein spennann af hverju andliti en einnig mátti sjá áhyggjusvip á mörgum,ég var einn þeirra en það er eðlilegt þegar jafn þýðingarmikill leikur er í aðsigi,síðan hófst leikurinn og verð ég að segja að engu líkara var en valsmenn hefðu ekki mætt til leiks í fyrri hálfleik áhugaleysið algjört og var spilamenskan eftir því,ÍR-liðið hafði engar áhyggjur af því spilaði fantavörn,geggjaðann sóknarleik og í markinu stóð fyriliðinn Gísli Guðmundson vaktina af stakri snilld og varði 17 skot,þar af mörg úr dauðafærum,enda seig ÍR-liðið hægt og sígandi frammúr og leiddi í leikhlei 14-21,ekki laust við að útlitið var bjart,en fljótlega fékk maður fréttir af því að HK væri yfir gegn Fylki og FH-ingar stæðu jafnfætis Haukunum.Nú svo hófst seinni hálfleikurinn og greinilegt var á öllu að Valsliðið hefði fengið smá lestur í leikhléinu því allt annað lið kom til seinni hálfleiks og um hann miðjan hafði valur minkað muninn í 24-26 og áhyggjusvipur farinn að myndast á mörgum ÍR-ingnum í stúkunni,en þá rifu strákarnir sig í gang á ný og lokuðu vörninni og markvarslann hélt áfram að vera góð og auk þess sem sóknirnar urðu geggjaðar á ný og komu mörk í öllum regnbogans litum,enda fór það svo að ÍR sigraði Val 29-37,eftir leik tók við smá taugatrekkjandi bið eftir því hvort þessi glæsilegi sigur dyggði og fögnuðurinn var ólýsanlegur þegar fréttist að FH hefði tapað fyrir Haukum,þar með féll FH og óskum við þeim velfarnaðar í 2 deildinni,það er sárt að falla en einhverjir þurftu að ganga sporin þungu niður.Mér finnst ekki sæmandi að tína úr einhvern sem besta mann liðsins heldur ætla ég að útnefna allt liðið besta leikmanninn enda áttu allir góðan leik,verður gaman að fylgjast með þessum strákum á komandi árum enda framtíðarlið á ferðinni,en samt þurfum nokkra reynda menn í liðið til að styrkja það á næsta tímabili,í klefanum eftir leikinn tilkynntu þeir Finnbogi og Júlli afsögn sína enda verið með liðið í 5 ár og vil ég prívat og persónulega þakka þeim fyrir samstarfið sem hefur verið gott í hvívetna,við tekur ÍR-ingurinn Erlendur Ísfeld og er það í 2 sinn sem hann stýrir liðinu en hann stýrði liðinu ásamt Matthíasi Matthíassyni um 1997,bjóðum við hann velkominn til starfa á ný,en ljóst er að hans bíður erfitt verkefni því á næsta tímabili verða einungis 8 lið og til að falla ekki þarf liðið að enda í topp 6,er erfitt en um leiðskemmtilegt,ögrandi og verðugt verkefni.Ekki skal gleyma áhangendum ÍR sem fjölmenntu í Víkina og hvöttu strákana með hrópum og köllum og voru þeir svo sannarlega 8 maðurinn og skipti það sköpum í leiknum,mætti vera svona margir á heimaleikjum næsta vetur.Ennfremur vil ég óska liði Fram til hamingju með mjög svo verðskuldaðann íslandsmeistaratitil,til hamingju Framarar.En nú er skemmtilegu tímabili lokið og biðin eftir því næsta verður löng,en nú er mál að linni í bili,ég vil þakka öllum ÍR-ngum fyrir síðasta laugardag,sjáumst hress næsta vetur. Með handboltakveðju:Magnús Korntop kynnir handboltadeildar ÍR.

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 16:25:26 / steelers

Nú eða aldrei.

Á morgunn kl 16´15 spilar ÍR einhvern sinn mikilvægasta leik í langan tíma er strákarnir okkar mæta Val í Víkinni en leikurinn var færður þangað eftir að í ljós kom að Laugardalshöllin var tvíbókuð,en hvað um það,leikurinn á morgunn skiptir gríðarlegu máli og ljóst að ekkert má gefa eftir,þrír möguleikar eru í stöðunni,lítum á þá aðeins:1:Við vinnum og erum þá að öllum líkindum hólpnir nema eitthvað mikið gerist í hinum leikjunum.2.Ef leikurinn fer jafntefli tekur við löng og örvæntingafull bið eftir úrslitum í hinum leikjunum sem skera munu þá úr um örlög okkar.3Ef við töpum þá er þetta búið og við tekur 2 deild næsta haust þannig að mikið er í húfi ekki bara fyrir Breiðholtið heldur hverfið í heild.En förum yfir veturinn aðeins og skoðum hvað hefur gerst og hvað að mínu mati megi laga,en eins og áður þá eru þetta mínar skoðanir sem hér birtast og vil ég að ÍR-ingar commenti hér fyrir neðan(Sérstaklega leikmenn og forráðamenn deildarinnar hvort sem menn og konur séu mér sammála eða ekki það skapar skoðanaskipti og til þess er leikurinn gerður).Í haust byrjaði liðið með ungt lið eftir að erlend lið höfðu reytt af okkur helstu skrautfjaðrirnar,en í mínum augum hafa sumir þessara leikmanna sem út fóru ekki fengið að spila mikið og hefðu betur verið kyrrir hér hjá okkur en vogum vinnur,vogum tapar í þeim efnum og ekki fyrirséð hvernig það fer en hvað um það?Liðið byrjaði svo sannarlega með látum og vann Hauka í meistarar meistaranna og byrjaði svo deildina af krafti en brátt fór reynsluleysi að gera vart við sig og brátt kom dökkur kafli þegar liðið tapaði 6 leikjum í röð.Eftir áramót héldu leikmenn og þjálfarar í æfingarferð til Kanaríeyja og komu þaðan ferskari en nokkru sinni,og byrjuðu seinni umferð á góðum sigri á Akureyri og svona gekk áfram,en í mikilvægustu leikjunum gegn Aftureldingu og FH gekk ekki vel,gegn Aftureldingu jöfnuðum við á seinustu sekúndu og gegn FH misstum við gjörunninn leik niður í jafntefli og er reynsluleysi hér um að kenna en einnig hafa meiðsli leimmanna haft gríðarleg áhrif en aðrir leikmenn hafa þá bara fengið aukna ábyrggð og skilað henni vel en þessir leikir geta hæglega sagt til sín og vegið þungt þegar finna skal út hverjir falla úr deild þeirra bestu,ljóst er að margir leikmanna hafa öðlast mikla reynslu í vetur,hefur sóknarleikurinn oft verið hrein unun meðan varnarleikurinn hefur oft verið eins og vængjahurð,og því segir það sig sjálft að varnarleikurinn er það sem þarf að laga fyrir næsta vetur hvar svo sem við leikum,ég og aðrir ÍR-ingar erum stoltir af strákunum og fyrir mig er gaman að starfa í kringum þetta,ljóst er samt á öllu að það þarf fleiri reynda menn í hópinn til að styrkja liðið en peningar vaxa ekki á trjánum eins er til heill haugur af ungum strákum í félaginu og eins og ég sagði í fyrri greininni þá er stjórnin samhent og allir starfsmenn leiksins ÍR-ingar og er það frábært.En leikurinn á morgunn er leikur sem allir ÍR-ingar mæta á og garga úr sér röddina fyrir strákana og félagið,áhangendur eru 8 maðurinn getur skipt sköpum um hvar við spilum að ári,ég vonast til að sjá sem flesta í Víkinni kl 16´15 á morgunn oft er þörf en nú er svo sannarlega nauðsyn,hlakka til að sjá ykkur sem flest,ekki er vitað hvort rútuferð verður í víkina en það verður auglýst á ÍR síðunni. Áfram ÍR.Með handboltakveðju:Magnús Korntop kynnir handboltadeildar ÍR.

» 7 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 18:34:15 / steelers

Verður handboltalið ÍR uppi eða niðri?

Jæja gott fólk,þá er komið að því að fjalla um handboltalið MFL ÍR í handbolta hvar stöndum við og hvert stefnum við?Eins og áður eru þessar pælingar eða hugleiðingar skoðanir mínar og einskis annars svo að ef einhverjum líkar ekki eitthvað sem ég set hér fram í greininni vil ég fá skammirnar í formi skoðanna hér fyrir neðan.En byrjum þá á þessu ég kem sjálfsagt til með að gleyma einhverju en slíkt gerist og svoleiðis verður það að vera en vonandi taka menn viljann fyrir verkið.Eins og menn muna þá missti ÍR nær allt byrjunarliðið eftir síðasta tímabil og eftir stóðu ungir strákar sem höfðu mestmegnis setið á bekknum en þurftu nú skyndilega að taka aukna ábyrggð og verður ekki af þeim tekið að það hafa þeir gert með sóma,þeir byrjuðu á því að vinna Hauka í keppni meistarar meistaranna, einnig hafa þjálfarar og aðstoðarmenn reynt að stýra skútunni í þeim ólgusjó og ágjöfum sem á hafa dunið í vetur. Óhætt er að segja að byrjunin hafi verið góð framan af en fljótlega fór að bera á reynsluleysi sem er ekkert skrýtið miðað við aðstæður,oft hefur sóknarleikur liðsins verið hrein unun en vandamálið hefur að mínu mati legið í vörninni og er það hlutur sem verður lagaður fyrir næstu leiktíð sama í hvorri deild við spilum,Í mörgum leikjum í vetur hefur liðið verið með unnin leik í höndunum en misst hann annað hvort niður í tap eða jafntefli,verður reynsluleysi nær eingöngu kennt um en einnig hafa meiðsli sett sinn svip á liðið en maður kemur í manns stað og í þannig ástandi fá yngri menn tækifæri og læra að taka ábyrggð og er það bara í fínu lagi.Eftir góða byrjun fyrir jól komu að mig minnir 6 tapleikir í röð og var það erfiður biti að kyngja,eftir áramót gekk vel til að byrja með en upp á síðkastið höfum við hent frá okkur sigrum eins og gerðist gegn FH og einnig var leikurinn gegn Aftureldingu okkur dýr og gætu þessir 2 leikir haft afdrifaríkar afleiðingar þegar upp verður staðið,núna þegar þetta er ritað er ÍR í 9 sæti deildarinnar og þarf ýmislegt að ganga upp fyrir okkur til að við séum meðal 8 efstu og þar með í úrvalsdeild næsta vetur.Tekið skal fram að innbyrðis viðureign ræður ef lið verða jöfn að stigum þannig að við stöndum höllum fæti gegn KA og FH en erum með betri stöðu gegn HK,við eigum 1 leik eftir gegn Val og ef við vinnum hann þurfum við að treysta á úrslit leikja liðanna í kringum okkur en aðallega eigum við fyrst að hugsa um okkur sjálfa,verði hinsvegar jafntefli mun hins vegar taka við örvæntingarfull bið eftir örlögum okkar næsta vetur en allt er hægt í handbolta og það er ekki til í orðabókinni að gefast upp hjá þessum strákum,einnig er það hlutur áhangenda ÍR sem er 8 maðurinn og getur skipt miklu máli og verð ég að segja að mér finnst alltof fáir hafa mætt á leiki liðsins en á laugardaginn eiga allir ÍR-ingar að sjá sóma sinn og hvetja strákana,oft er þörf en nú er svo sannarlega nauðsyn,ljóst er að ÍR-ingar allir sem einn verða að standa saman á laugardaginn og öskra sig hása.Ljóst er á öllu þessu að framtíðin er björt hjá ÍR í handboltanum og engin ástæða til að örvænta,nóg er af ungum strákum,yngri flokka starfið blómstrar sem aldrei fyrr og starfsmenn leiksins(Tímaverðir,sá á kústinum og kynnir eru ÍR-ingar svo ekki sé minnst á Bláu höndina).Með þetta að vopni eigum við hiklaust að halda merkinu hátt á lofti og berja mönnum kraft og áræði í brjóst,við ÍR-ingar getum verið stoltir að strákunum okkar.Við ÍR-ingar hættum ekkert að spila handbolta þó illa fari nú,stjórn deildarinnar er sterk og samhent og mikill dugnaður þar í gangi.En mál er að linni í bili,látum sjá okkur í Víkinni á Laugardaginn,en leikurinn var færður þangað þegar í ljós kom að Höllin var tvíbókuð.Mætum öll í víkina og hvetjum okkar menn til sigurs.Áfram ÍR.Með handboltakveðju:Magnús Korntop kynnir handboltadeildar ÍR.

» 16 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 17:28:41 / steelers

Lyftingarferillinn minn.

Jæja gott fólk,þá er komið að ví að rifja upp lyftingarferilinn í stuttu máli en margir hafa beðið um pistil og þá sérstaklega Kári köttur og hér kemur þessi margumbeðna upprifjun á þessum einstæða ferli.Vonandi verðið þið einhverju fróðari um mig.Ég byrjaði að æfa lyftingar í Æfingamiðstöðinni Engihjalla 8 undir stjórn Óskars Sigurpálsonar(Skörin)árið 1988.Kom fljótlega í ljós að kallinn varð góður"bekkari"og tók ég á fyrstu æfingu 70 kg.Eftir góðan tíma þar færði ég mig yfir í ÍFR og æfði undir stjórn hæfra þjálfara,fyrst undir stjórn Guðmundar Bragasonar(Hann er margfaldur meistari í vaxtarækt)En síðan tók Arnar Már"Loggur"Jónson við og hefur hann þjálfað hjá ÍFR nær samfleytt frá ´93(En hann er fyrir löngu orðinn einn af mubblunum í íþróttahúsi ÍFR og verður bráðum antík).Ég hef kynnst mörgum eftirminnilegum lyftingar og aflraunamönnum í gegnum tíðina bæði ófötluðum sem fötluðum en að fá að kynnast Jóni Páli Sigmarsyni voru forréttindi og leyfi ég mér að fullyrða það hér að hann er besti íþróttamaður sem litla Ísland hefur af sér alið og voru vinsældir hans slíkar að enginn íþróttamaður hvorki fyrr né síðar hefur náð viðlíka vinsældum,kenndi hann mér mikið og verð ég honum alltaf ævinlega þakklátur fyrir það.Ég hef unnið allt í lyftingum fatlaðra en flokkarnir skiptast í hreyfihamlaðra og þroskaheftra og er ég í seinni flokknum.Hef ég orðið íslandsmeistari 4x auk Rvk og Hængsmeistaratitla en stærsta stundin á ferlinum var á Special Olympics í New Haven í Connectecutfylki í Bandaríkjunum þegar ég hirti 3 gull,leið mér mjög vel eftir þann heiður,en það mót væri efni í spes blogg og geri ég það örugglega síðar.Ekki get ég sagt að ég hafi verið jafnvígur á allar greinar(Langt í frá en bekkurinn var alltaf bestur og tel ég mig geta tekið 100 kg hvar og hvenær sem er(Smá hroki).Mínar bestu tölur í einstaka greinum eru eftirfarandi: Hnébeygja 125kg(Arfalélegt),Bekkpressa 130(Íslandsmet frá 13 mars´05)og Réttstöðuyfta 190 kg(Frá ´94,var íslandsmet þar til fyrir 2 árum að Vinur minn Kristbergur Jónson sló það)Talað hefur verið um að kallinn geri enn eitt combackið en sökum æfingaleysis,metnaðarleysis og tímaskorts verður ekki gefið neitt loforð um það hér,það væri gaman að sjá ykkur á lyftingarmótum á ný en guð einn ræður hvort af því verður.Vonandi hafið þið lesendur góðir haft gaman af þessari litlu upprifjun á lyftingarferli mínum en nú er mál að linni.Meira síðar.KV:Maggi

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 15:20:36 / steelers

Arsenal-Villareal.

Í kvöld verður seinni leikur fyrri umferðar undanúrslita í Meistaradeild Evrópu þegar mætast á Higbury leikvanginum í London lið Arsenal og Villareal,er þetta afar áhugaverður leikur og ljóst að hart verður barist en óhætt er að segja að bæði lið eru komin lengra en spekingar sögðu til um. Ljóst er að stór skörð eru höggvin í lið spánverjanna en báðir miðverðirnir eru meiddir og svo er markmaðurinn í leikbanni en hann fékk áminningu á lokamínútunum gegn Inter Milan á síðustu mínútunni sem kostar hann leikinn í kvöld,en Villareal hafa menn á borð við Riquelme og Forlan og geta þeir gert usla í ungri Arsenalvörninni.Hjá Arsenal eru allir heilir að því er virðist og ljóst að Thierry henry verður stórhættulegur frammi,enn ekki má gleyma mönnum eins og Ljungberg og Fabrecas,en ég bíð spenntur eftir þessum leik í kvöld.Spá 2-0 En látum þetta gott heita í bili,meira síðar,KV:Maggi

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan